Nokia 2710 Navigation Edition - Um stafræn réttindi

background image

Um stafræn réttindi
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra, þ.m.t.

höfundarrétt. Varnir vegna höfundarréttar geta hindrað afritun, breytingu eða flutning mynda, tónlistar og annars efnis.

Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar réttindatækni (DRM) til að vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t.

höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi gerðir stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Í þessu tæki er hægt að

opna efni sem er varið með WMDRM 10, OMA DRM 1.0, OMA DRM 1.0 forward lock, og OMA DRM 2.0. Ef tiltekinn stafrænn

hugbúnaður nær ekki að verja efni geta efniseigendur beðið um að hæfni slíks hugbúnaðar til að opna nýtt efni sem er varið

34 Vöru- og öryggisupplýsingar

background image

með stafrænni réttindatækni sé afturkölluð. Með afturköllun er einnig hægt að hindra endurnýjun á þannig vernduðu efni sem

þegar er í tækinu. Afturköllun slíks hugbúnaðar hefur ekki áhrif á notkun efnis sem er varið með öðrum gerðum stafrænna

réttinda eða notkun efnis sem ekki er varið með stafrænum réttindum.

Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir leyfi sem tilgreinir hvernig hægt er að nota efnið.

Ekki er víst að aðrar flutningsaðferðir flytji leyfin sem þarf að endurstilla með OMA DRM-vörðu efni, til þess að hægt sé að nota

það eftir að minni tækisins hefur verið forsniðið. Einnig gæti þurft að endurstilla leyfin ef skrár í tækinu skemmast.

Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni ásamt leyfum þess ef minni tækisins er forsniðið. Einnig gætu leyfin og

efnið glatast ef skrár í tækinu skemmast. Glatist leyfin eða efnið getur það takmarkað möguleikann á að nota efnið aftur.

Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Sum leyfi kunna að vera tengd tilteknu SIM-korti og aðeins er hægt að fá aðgang að varða efninu ef SIM-kortið er í tækinu.