Nokia 2710 Navigation Edition - Samnýtt minni

background image

Samnýtt minni
Eftirfarandi aðgerðir í þessu tæki geta samnýtt minni: margmiðlunarskilaboð (MMS), tölvupóstforrit, spjallskilaboð. Notkun

einnar eða fleiri af þessum aðgerðum getur minnkað tiltækt minni fyrir aðrar aðgerðir. Ef tækið sýnir boð um að minnið sé fullt

skaltu eyða einhverjum upplýsingum úr samnýtta minninu.

Stafræn réttindi

Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar réttindatækni (DRM) til að vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t.

höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi gerðir stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Með þessu tæki er hægt að

opna efni sem verndað er með WMDRM 10, OMA DRM 1.0, OMA DRM 1.0 forward lock, og OMA DRM 2.0. Ef tiltekinn stafrænn

hugbúnaður nær ekki að verja efni kunna efniseigendur að biðja um að geta slíks hugbúnaðar til að opna nýtt efni sem er varið

með stafrænni réttindatækni sé endurvakin. Slíkt kann einnig að hindra endurnýjun þess stafræns varins efnis sem er þegar í

tækinu. Endurvakning slíks hugbúnaðar hefur ekki áhrif á notkun efnis sem er verndað með öðrum gerðum stafrænna réttinda

eða notkun efnis sem ekki er verndað með stafrænum réttindum.