Nokia 2710 Navigation Edition - Sérþjónusta

background image

Sérþjónusta
Til að hægt sé að nota tækið verða notendur að vera áskrifendur þjónustu fyrir þráðlausa síma. Ekki er hægt að nota alla þessa

valkosti í öllum símkerfum. Fyrir suma eiginleika kann jafnframt að vera farið fram á sérstaka skráningu hjá þjónustuveitunni.

Sérþjónusta felur í sér sendingu gagna. Fáðu upplýsingar hjá þjónustuveitu þinni um gjöld á heimaneti þínu og þegar reiki er

notað á öðrum netum. Þú getur fengið upplýsingar um gjöld hjá þjónustuveitunni. Sum netkerfi geta verið með takmörkunum

sem hafa áhrif á hvernig hægt er að nota tiltekna eiginleika tækisins og krefjast netþjónustu á borð við stuðning við tiltekna

tækni eins og WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL) sem fara eftir TCP/IP samskiptareglum og ýmsum sérstöfum í tungumálum.

Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast

þær ekki í valmynd tækisins. Í tækinu gætu atriði einnig verið sérsniðin, s.s. heiti á valmyndum, skipanir og tákn.