SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir
Örugg fjarlæging. Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en
rafhlaðan er fjarlægð.
SIM-kortið og innihald þess getur hæglega orðið fyrir skemmdum ef það er rispað eða
beygt svo fara skal varlega þegar það er meðhöndlað, sett inn og tekið út.
1 Renndu bakhliðinni niður og fjarlægðu hana (1) .
2 Fjarlægðu rafhlöðuna (2).
3 Settu SIM-kortið á sinn stað. Gættu þess að snertiflöturinn snúi niður og að
skáhornið á SIM-kortinu snúi niður í tækinu (3, 4, 5).
4 Settu rafhlöðuna og bakhliðina aftur á sinn stað (6, 7).