Nokia 2710 Navigation Edition - Um staðsetningaraðferðir

background image

Um staðsetningaraðferðir

Kortaforritið sýnir hvar þú ert staddur á kortinu með notkun GPS eða A-GPS.
GPS-kerfið er leiðsagnarkerfi, sem styðst við gervihnetti, og er notað til að reikna út

staðsetningu. A-GPS er sérþjónusta sem notar gögn úr staðarkerfi til að auka hraða og

nákvæmni GPS-staðsetningar.

26 Kort

background image

Niðurhal á A-GPS gögnum felur í sér gagnasendingar um farsímakerfi

þjónustuveitunnar. Þegar tækið er notað í reiki, þ.e. utan svæði þjónustuveitunnar,

kunna gagnaflutningsgjöld að vera hærri en ella. Því er sjálfgefið að A-GPS sé ekki notað

í reiki, en þar með getur tekið lengri tíma að reikna út staðsetninguna en þegar A-GPS

er notað.
Til að leyfa notkun A-GPS í reiki velurðu

Valmynd

>

Stillingar

>

Tengingar

>

GPS

>

Nettengt GPS

. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar um gagnaflutningsgjöld.

GPS-kerfið (Global Positioning System) er rekið af Bandaríkjastjórn sem ber alla ábyrgð

á nákvæmni þess og viðhaldi. Nákvæmni staðsetningargagna kann að verða fyrir

áhrifum af breytingum á GPS-gervihnöttum sem gerðar eru af Bandaríkjastjórn og kann

að breytast í samræmi við stefnu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um borgaralegt

GPS og alríkisáætlun um þráðlausa leiðsögu. Slæm rúmfræði gervihnatta getur einnig

haft áhrif á nákvæmni. Staðsetning, byggingar, náttúrulegar hindranir auk

veðurskilyrða kunna að hafa áhrif á móttöku og gæði GPS-merkja. Verið getur að GPS-

merki náist ekki inni í byggingum eða neðanjarðargöngum og þau geta orðið fyrir

áhrifum frá efnum eins og steypu og málmi.
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar staðsetningarmælingar og aldrei ætti að treysta

eingöngu á staðsetningargögn frá GPS-móttakaranum og símkerfi fyrir staðsetningu

eða leiðsögn.
Áreiðanleiki áfangamælisins er ekki fullkominn og sléttunarvillur eru mögulegar.

Nákvæmnin veltur einnig á móttöku og gæðum GPS-merkja.